Fimm Þorlákshafnarbúar voru valdir til æfinga í yngri landsliðum KKÍ en æfingarnar fara fram á milli jóla og nýárs.
Sæmundur Þór Guðveigsson var valinn í U15, Styrmir Snær Þrastarson í U16, Dagrún Ingua Jónsdóttir í U16, Jenný Lovísa Benediktsdóttir í U16 og Sigrún Elfa Ágústsdóttir í U18.
Endanleg landslið verða síðan valin 28. febrúar þegar 12 manna lið í hverjum flokki fyrir sumarið verður tilkynnt.
Glæsilegur árangur hjá okkar krökkum!