Hrönn Guðmundsdóttir á Læk í Ölfusi hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Hekluskóga og mun hún taka við starfinu af Hreini Óskarssyni. Þetta kom fram á fundi framkvæmdaráðs Skógræktarinnar á föstudag.
Starfshlutfall Hrannar verður 30% en hún starfar áfram sem framkvæmdastjóri Landssamtaka skógareigenda í 70% stöðu.
Á fundinum var rætt um vinnu við fjárhagsáætlanagerð hjá Skógræktinni, vinnu að landsáætlun í skógrækt sem er að hefjast og fleiri mál.
Á fundinum ræddi framkvæmdaráðið líka mögulega skógrækt á uppgræddum svæðum í Þingeyjarsýslum sem Landgræðslan vill efna til samstarfs við Skógræktina um og sömuleiðis um Þorláksskóga á Hafnarsandi í Ölfusi sem eru í undirbúningi. Fundir eru ráðgerðir á næstunni um bæði þessi efni með Landgræðslunni og fleirum.