Úrslit úr Minningarmótinu um Gunnar Jón – Veglegur styrkur til Kkd. Þórs

Hið árlega golfmót til minningar um Gunnar Jón Guðmundsson var haldið á Þorláksvelli 15. ágúst síðastliðinn.

Minningarmótið er haldið árlega og rennur allur ágóði af mótinu í Minningarsjóð Gunnars Jóns, sem hefur það að markmiði að styrkja íþrótta- og æskulýðsstarf í Sveitarfélaginu Ölfus ásamt öðru forvarnarstarfi í leik- og grunnskólum á svæðinu.

Mjög góð þátttaka var í mótinu og komust færri að en vildu. Alls tóku 72 kylfingar þátt og skemmtu sér vel á flottum golfvellinum. Í mótslok var grillað og veitt verðlaun ásamt því að dregnir voru út fjöldinn allur af vinningum úr skorkortum.

Sigurvegarar mótsins voru félagarnir Elís Rúnar Elísson og Björn Andri Bergsson, en þeir spiluðu völlinn á 61 höggi nettó. Óskum við þeim innilega til hamingju með sigurinn.

Hér að neðan má sjá helstu úrslit mótsins:

  1. GM – b (Elís Rúnar Elísson og Björn Andri Bergsson) – 61 högg nettó
  2. Egill / Eyþór (Egill Magnússon og Eyþór Már Magnússon) – 62 högg nettó
  3. Poolarar (Hilmir Guðlaugsson og Gunnar Marel Einarsson) – 63 högg nettó

    Næst holu á 2. braut – Birgir Bjarnason 0,27 m
    Næst holu á 5. braut – Ólafur Ágúst Ingason 3,45 m
    Næst holu á 10. braut – Þórleifur Karl Karlsson 4,42 m
    Næst holu á 12. braut – Þorlákur G. Halldórsson 0,76 m
    Næst holu á 15. braut – Gilbert Árni Hólmarsson 0,93 m
    Næst holu á 17. braut – Gunnar Marel Einarsson 1,81 m
Það voru flottir fulltrúar körfuknattleiksdeildarinnar sem tóku við styrknum.

Við setningu mótsins í ár var Körfuknattleiksdeild Þórs veittur styrkur úr Minningarsjóði Gunnars Jóns upp á 1,5 milljón króna. Ákveðið var að veita deildinni styrk fyrir frábæran árangur meistaraflokks á liðnu tímabili sem og fyrir öflugt barna- og unglingastarf. Óskum við Körfuknattleiksdeild Þórs til hamingju með Íslandsmeistaratitilinn.

Minningarsjóður Gunnars Jóns Guðmundssonar vill koma á framfæri sérstökum þökkum til allra styrktaraðila mótsins sem og allra þátttakenda fyrir stuðninginn við mótið.

f.h. Minningarsjóðs Gunnars Jóns
Guðmundur Baldursson
Magnús Joachim Guðmundsson

Öll úrslit mótsins:

  1. GM – b 61 högg nettó
  2. Egill / Eyþór 62 högg nettó
  3. Poolarar 63 högg nettó
  4. Stokkseyrarfans 63 högg nettó
  5. Týr og Þór 63 högg nettó
  6. Norðaustur 64 högg nettó
  7. Ingason / Jóhannesdóttir 65 högg nettó
  8. Smárason / Hjartardóttir 65 högg nettó
  9. LFC 65 högg nettó
  10. Sigurbjörnsson / Jónsdóttir 65 högg nettó
  11. Liverpool fans 65 högg nettó
  12. Lúsmý 66 högg nettó
  13. Skeiðamenn 66 högg nettó
  14. Nýtum völlinn 66 högg nettó
  15. Hólmsteinsson x2 66 högg nettó
  16. Þorgils / Guðmundur 66 högg nettó
  17. Páll – Ögmundur 66 högg nettó
  18. Og RASS 67 högg nettó
  19. Guðfinnsson / Ingvarsdóttir 67 högg nettó
  20. Feðgarnir 67 högg nettó
  21. BB 4 67 högg nettó
  22. Kríukot 69 högg nettó
  23. Garibaldarnir 69 högg nettó
  24. Frændurnir 69 högg nettó
  25. JÁ 70 högg nettó
  26. RASS 70 högg nettó
  27. Efsti-Kambur 71 högg nettó
  28. Gestsdóttir / Karlsson 71 högg nettó
  29. Rupia 71 högg nettó
  30. Hafberg 72 högg nettó
  31. Bestu 73 högg nettó
  32. GOTT PAR 74 högg nettó
  33. B29 74 högg nettó
  34. Andri – Sindri 75 högg nettó
  35. FORE! 76 högg nettó
  36. Magnússon / Grétarsdóttir 80 högg nettó