Bókagjöf til allra nemenda í 8. – 10. bekk

Bókin Verum ástfangin af lífinu eftir Þorgrím Þráinsson kom út á dögunum. Bókin er stútfull af hvatningu og ráðum um hvernig maður getur verið sinnar eigin gæfu smiður í lífinu. Fjallað er um samskipti við vini og fjölskyldu, mikilvægi hreyfingar, markmiðssetningu, hvernig á að rækta hæfileika sína, baráttuna við kvíða og hvernig þú getur orðið betri manneskja.

Bókin er framhald af fyrirlestrum sem Þorgrímur hefur farið með í skóla um allt land á undanförnum árum. Þorgrímur hefur komið til í Grunnskólann í Þorlákshöfn á hverju skólaári og heimsóknir hans jafnan vakið athygli og góðar umræður meðal nemenda.

Sigrún Berglind, kennari á unglingastigi, fletti bókinni þegar hún kom á skólabókasafnið. Hún hugsaði strax að þessa bók þyrftu allir okkar unglingar að eignast. Sigrún tók sig til og hafði samband við Hannes Sigurðsson útgerðarmann hjá Hafnarnesi Veri og ræddi hugmyndina.

Skemmst er frá því að segja að í dag komu Kata og Óli börn Hannesar og Tótu og afhentu grunnskólanum bókina að gjöf til allra nemenda á unglingastigi. Þorgrímur var að sjálfsagðu ánægður með framtakið þegar starfsfólk grunnskólans hafði samband við hann. Mætti hann á svæðið og ritaði persónulega kveðju inni í hverja og eina bók.

Á þessi jólagjöf frá fjölskyldunni í Hafnarnesi Veri eftir að nýtast nemendum vel og eiga þau öll hrós skilið fyrir framtakið.