Á fundi Bæjarstjórnar Ölfuss í gær var samþykkt fjárhagsáætlun fyrir árið 2022. Áætlunin gerir ráð fyrir jákvæðri rekstrarniðurstöðu bæði samtæðu og A hluta, hjá samstæðu upp á 283 milljónir og hjá A hluta upp á 143 milljónir.
Ráðgert er að rekstrartekjur samstæðu verði 3.677.545 þús. kr. og rekstrargjöld: 3.043.578 þús. kr. Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld verði 132.611 þús. kr. og afskriftir 218.288 þús. kr.
Sé litið til A hluta má sjá að ráðgert er að árið 2021 verði rekstrartekjur 3.094.480 þús. kr. og rekstrargjöld: 2.767.630 þús. kr. Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld verði: 82.348 þús kr. og afskriftir 101.154 þús. Rekstrarniðurstaða verði því jákvæð sem nemur 143.348 þús. kr.
„Ráðgert er að veltufé samstæðu frá rekstri verði 612 milljónir og að fjárfesting nemi 1.529 milljónum kr. Þá er fyrirhugað að greiða langtímalán niður fyrir 211 milljónir en samhliða verði tekin ný lán að upphæð 740 milljónir króna. Stærsti hluti þeirrar lántöku er til framkvæmda við höfnina og þá innviðauppbyggingu sem óhjákvæmilega fylgir þeim mikla vexti sem er í Ölfusi. Meðal þeirra stærstu eru bygging á nýjum leikskóla, stækkun á þjónustumiðstöð aldraðra, frekari uppbygging tengd íþróttamannvirkju, gatnagerð, fráveita og fl.“ Segir í fréttatilkynningu frá Elliða Vignissyni bæjarstjóra Ölfuss.
„Sé litið til reksturs málaflokka má ljóst vera að umtalsverð útgjaldaaukning er fyrirséð á næsta ári. Mestu munar þar að velferðarmálefni vaxa verulega. Þannig eykst kostnaður vegna félagsþjónustu um 54 milljónir frá seinustu fjárhagsáætlun, fræðslu- og uppeldismál um 112 milljónir og æskulýðs- og íþróttamál um 27 milljónir. Samhliða þessum mikilvægu þáttum er áfram allra leiða leitað til að létta álögur á bæjarbúa og styðja við bakið á þeim. Þar ber hæst að fasteignaskattur er lækkaður úr 0,33% í 0,31%. Hefur álagningahlutfallið því lækkað um 18% á fjórum árum eða úr 0,38% árið 2018 í 0,31% 2022.“