Húsnæðissamvinnufélagið Elliði auglýsir búseturétt til sölu

Húsnæðissamvinnufélagið Elliði auglýsir til sölu búseturétt í parhúsi sem staðsett er í byggðarkjarna eldri borgara í Þorlákshöfn.

Sunnubraut 4 í Þorlákshöfn
Til sölu er búseturéttur í 2ja svefnherbergja íbúð í parhúsi. Í heildina er eignin 124,3 fm. og þar af bílskúr 28,6 fm. Húsið var byggt árið 2004 og er staðsett í rólegum og notalegum byggðarkjarna eldri borgara í Þorlákshöfn.

Búseturétturinn kostar 5.000.000 kr. og mánaðargjöldin eru 165.886 kr. og hækka m.v. vísitölu neysluverðs. Því til viðbótar er greitt rafmagn, hiti og fasteignagjöld.

Bæði félagsmenn og utanfélagsmenn geta keypt búseturéttinn en aldursskilyrði eru 60 ára og eldri. Við úthlutun verður horft til þess hve lengi einstaklingar sem sækja um hafa verið í félaginu. Ef engin félagsmaður sækir um verður búseturétturinn seldur til utanfélagsmanna.

Íbúðin er laus og verður afhent 1. júní nk. og skulu umsóknir berast félaginu fyrir 10.maí nk.

Þeir sem hafa áhuga á að kaupa búseturéttinn skulu senda inn umsóknir á Sveitarfélagið Ölfus, Hafnarberg 1, 815 Þorlákshöfn eða á netfangið sandradis@olfus.is. Nánari upplýsingar veitir Sandra Dís Hafþórsdóttir sandradis@olfus.is eða í síma 480-3800.