Samkomulag við Arion banka og Landsbankann um fjármögnun First Water

Landeldisfyrirtækið First Water hefur náð samkomulagi við Landsbankann og Arion banka um 80 milljón evra fjármögnun, sem samsvarar um 12 milljörðum íslenskra króna. Samkomulagið er mikilvægur áfangi í uppbyggingu First Water og er með hefðbundnum fyrirvörum. Stefnt er að því að stækka þessa fjármögnun síðar eftir því sem verkefninu vindur fram.  First Water vinnur að uppbygginu hágæða matvælaframleiðslu við Laxabraut í Þorlákshöfn.

Eggert Þór Kristófersson forstjóri First Water

„Fjármögnun á verkefni af þessari stærðargráðu er eðlilega krefjandi ferli og við getum því ekki verið annað en sátt við þátttöku íslenskra banka í verkefninu. Við erum þakklát Arion banka og Landsbankanum fyrir það traust sem okkur er sýnt og erum spennt fyrir framtíðinni og þeim tækifærum sem vandað laxeldi á landi býður upp á. Þessi mikilvægi áfangi sýnir vel skuldbindingu félagsins til uppbyggingar fiskeldis í Þorlákshöfn með sjálfbærni- og umhverfissjónarmið að leiðarljósi,“ segir Eggert Þór Kristófersson forstjóri First Water.

Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka: „Það verður mjög spennandi að fylgjast með þeirri uppbyggingu sem fram undan er hjá First Water. Félagið bætist í góðan hóp fiskeldisfélaga sem Arion banki hefur lagt lið á undanförnum árum og mynda nú mikilvæga atvinnugrein, bæði fyrir fjölmörg byggðarlög landsins en einnig fyrir íslenskt efnahagslíf.“

Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans segir: „Við erum ánægð með að geta stutt við spennandi og metnaðarfull áform First Water um sjálfbært landeldi. Fyrirtækið hefur nú þegar náð eftirtektarverðum árangri og framtíðaráætlanir þess byggja á traustum og vönduðum undirbúningi. Við teljum allar forsendur til að First Water muni halda áfram að vaxa og dafna.“

First Water er að byggja 50.000 tonna landeldisstöð við Laxabraut í Þorlákshöfn í 6 fösum og munu rúmlega 300 manns starfa hjá fyrirtækinu árið 2029 en í dag eru starfsmenn um 80, þá mun  starfsemi félagsins að auki skapa allt að 300 afleidd störf. Félagið mun einnig byggja fiskvinnsluhús og seiðaeldi á Laxabraut á næstu árum. Laxinn verður alinn í kerjum á landi við kjöraðstæður í hreinum jarðsjó sem er dælt upp í gegnum hraunlög. Allt að 66% af jarðsjónum verður endurnýttur með tækni frá þekktum framleiðendum á borð við Linde og NP Innovation. Áður en jarðsjónum er skilað aftur til sjávar þá er hann hreinsaður og félagið þannig að tryggja sem best skilyrði fyrir vöxt og viðgang laxins með sjálfbærum hætti.  Þetta kerfi tryggir einstök gæði til að framleiða hágæða vöru og hefur félagið nú þegar selt um 1.500 tonn af hágæða laxi. Heildarfjárfesting félagsins í Þorlákshöfn er áætluð um 120 milljarðar íslenskra króna og árlega tekjur verði rúmlega 70 milljarðar íslenskra króna en langstærstur hluti framleiðslunnar verður seldur til Evrópu og Norður-Ameríku.