Tómas Valur er íþróttamaður Ölfuss 2024

Tómas Valur er vel að titlinum kominn með langan og farsælan keppnisferil í yngri flokkum Þórs og yngri landsliðum KKÍ. Tómas Valur lék stórt hlutverk í meistaraflokksliði Þórs sem var í toppbaráttu tímabilið 2023-2024. Í lokahófi KKÍ var Tómas valinn í úrvalslið Subwaydeildar auk þess að vera valinn besti ungi leikmaður ársins. Tómas var einn af betri leikmönnum í U-20 ára landsliðs Íslands sem lék í A – deild Evrópumótsins í körfuknattleik. Þá hlotnaðist Tómasi sá heiður að vera valinn í landsliðshóp A-landsliðs karla í fyrsta sinn á árinu. Tómas fór á vit ævintýranna síðast liðið haust þegar hann fékk skólastyrk til þess að spila með Washington State University í Bandaríkjunum.

Eftirtaldir íþróttamenn voru í kjöri til íþróttamanns Ölfuss 2024:

  • Bjarki Rúnar Jónínuson fyrir góðan árangur í knattspyrnu
  • Bríet Eva Guðmundsdóttir fyrir góðan árangur í fimleikum
  • Haraldur Ásgeir B. Haraldsson fyrir góðan árangur í rafíþróttum
  • Kristrún Ríkey Ólafsdóttir fyrir góðan árangur í körfuknattleik
  • Margrét Björg Jónsdóttir fyrir góðan árangur í keilu
  • Tómas Valur Þrastarson fyrir góðan árangur í körfuknattleik
  • Unnur Rós Ármannsdóttir fyrir góðan árangur í hestaíþróttum
  • Valgerður Einarsdóttir Hjaltested fyrir góðan árangur í bogfimi
  • Védís Huld Sigurðardóttir fyrir góðan árangur í hestaíþróttum

Viðurkenningar voru veittar til deildar-, Íslands- og bikarmeistara:

  • Íslandsmeistarar 1. deildar kvenna í körfuknattleik
  • Íslandsmeistarar í 12. flokki kvenna í körfuknattleik
  • Deildarmeistarar í 12. flokki karla 3. deild í körfuknattleik
  • Margrét Björg Jónsdóttir Íslands- og bikarmeistari í keilu
  • Valgerður E. Hjaltested Íslands- og bikarmeistari í bogfimi
  • Védís Huld Sigurðardóttir Norðurlandameistari fimmgangi ungmenna í hestaíþróttum

Einnig voru veittar viðurkenningar til íþróttamanna sem kepptu í landsliðum á árinu:

  • Margrét Björg Jónsdóttir í keilu
  • Valgerður E Hjaltested í bogfimi
  • Ragnar Snær Viðarsson í hestaíþróttum, ungmenna
  • Védís Huld Sigurðardóttir í hestaíþróttum, ungmenna
  • Jóhanna Ýr Ágústsdóttir í körfuknattleik U18
  • Emma Hrönn Hákonardóttir í körfuknattleik U20
  • Kristrún Ríkey Ólafsdóttir í körfuknattleik U20
  • Tómas Valur Þrastarson í körfuknattleik U20
  • Styrmir Snær Þrastarson í körfuknattleik A-landslið