Fyrirheitna landið

Hver hefði trúað því að þessi örfáu hús sem risu á svörtum sandinum rétt fyrir miðja síðustu öld gætu með tíð og tíma myndað ljómandi fallegt og búsældarlegt þorp, nei, þetta leit ekki vel út, það man ég svo vel. Það þurfti hörkutól og risastórar samheldnar fjölskyldur til að hefja þessa vegferð og þær gerðu það. En eins og þau segja fyrir vestan þegar undirbúningur fyrir Aldrei hátíðina hefst, “þú gerir ekki rassgat einn”. Það hafa margir lagt hönd á plóg í gegnum tíðina með í farteskinu óbilandi trú á samfélaginu og framtíðarsýn sem varð til þess að íbúum fjölgaði og samfélagið blómstraði. Uppgræðslan á sandinum, uppbygging á hafnarmannvirkjum, útrýming ýldu- og lýsismengunar, framsýn og metnaðarfull uppbygging skóla- og íþróttamannvirkja og skilningur á mikilvægi menningar, allt þetta býr til þorp, stað fyrir fólk. 

Og Sveitarfélagið Ölfus er samt svo miklu meira en þorpið Þorlákshöfn, þetta er landmikið sveitarfélag, ríkt af náttúruauðlindum og einstaklega vel í sveit sett. Sveitarfélagið á svo marga nágranna að næstum er fljótlegra að telja upp sveitarfélög sem ekki eiga landamerki að Ölfusi en þau sem liggja að okkar fallegu sveit. Það er stutt i höfuðborgina þar sem hægt að sækja allskonar þjónustu, afþreyingu og vinnu, það er stutt á Selfoss að sækja alla þá þjónustu sem þar er í boði og þó ekki sé lengur hægt að skella sér í sunnudagsbíltúr í Eden eins og gert var í denn þá er blómabærinn Hveragerði bókstaflega inn í miðju Ölfusi og til Hveragerðis má sækja margt gott, trúið mér. 

Í Ölfusi eru tveir skilgreindir þéttbýliskjarnar, Þorlákshöfn og Árbær en út um alla sveit eru að byggjast upp litlir kjarnar með mismörgum húsum, það eru því afar fjölbreyttir möguleikar í Ölfusi til að rækta lífshamingjuna en eins og allir vita býr hamingjan hér, ekki lognið, það býr á Ísafirði eða Flateyri.

Fjölgun íbúa í Ölfusi hefur verið ævintýraleg og alveg sambærileg við okkar ágætu nágranna í Árborg og Hveragerði, það má því leiða að því líkum að fjölskyldum í leit að góðum stað til að setja sig niður lítist vel á Ölfus og það er gott en alls ekki sjálfgefið. Ég hef ekki trú á að þessi mikla íbúafjölgun í Ölfusi sé vegna ofvaxins montskiltis á hreppamörkum, þó gæti það auðvitað verið, hvað veit ég. Mig grunar að gæði skólastarfs freisti barnafjölskyldna og þar erum við að standa okkur vel, eins er aðstaða til íþróttaiðkunar barna og fullorðinna með ágætasta móti. Þetta eru gæði sem ber að varðveita, þróa og þroska, það grundvöllur góðrar framtíðar. 

Það er enginn vandi að laga það sem þarf að laga hér í Ölfusi, það þarf framsýni, hugrekki, þor til að hlusta á íbúana og skýra framtíðarsýn um heilbrigt og heiðarlegt samfélag, þar sem stjórnsýslan virkar fyrir alla.

Bryndís Sigurðardóttir

4. sæti á lista Samfylkingar og félaga í Ölfusi

sb
Hafnarfréttir

Hafnarfréttir