Tómas Jónsson er flytjandi ársins í jasstónlist

Íslensku tónlistarverðlaunin voru veitt í kvöld í Hörpu og var sýnt frá athöfninni í beinni útsendingu á RÚV. Þorlákshafnarbúinn Tómas Jónsson átti tilnefningar í fjórum flokkum: Flytjandi ársins í djasstónlist, lög og tónverk ársins, jassplötu ársins og tónlistargrafík ársins.

Tómas hlaut tvenn verðlaun, í flokknum flytjandi ársins í djasstónlist og tónlistargrafík ársins fyrir Best á flest – Sounds of America ásamt Magnúsi Trygvasyni Eliassen – Davíð Arnar Baldursson og Ragnar Þórhallsson sáu um hönnun.

Hafnarfréttir óska Tómasi innilega til hamingju með tilnefningarnar og verðlaunin.

Hafnarfréttir

Hafnarfréttir