Síðasti leikur Þórs í Bónusdeildinni þetta tímabilið fer fram gegn Grindavík í kvöld. Leikurinn fer fram í HS Orkuhöllinni í Grindavík og hefst kl. 19:15. Leikurinn er afar mikilvægur fyrir strákana en með sigri eiga þeir áfram sæti í úrvalsdeildinni. Nú er um að gera að flykkast suður og hvetja strákana áfram og tryggja þeim sæti í úrvalsdeild næsta tímabil.
Mikilvægur leikur gegn Grindavík í kvöld

