Staða skólastjóra Grunnskólans í Þorlákshöfn auglýst til umsóknar

Á vef Sveitarfélagsins Ölfuss hefur auglýst eftir nýjum skólastjóra við Grunnskólann í Þorlákshöfn. Umsóknarfrestur rennur út þann 13. apríl og mu nýr skólastjóri hefja störf eigi síðar en 1. ágúst 2026.

Hæfniskröfur eru eftirfarandi:

  • Leyfisbréf til kennslu og kennslureynsla á grunnskólastigi
  • Framhaldsmenntun í stjórnun eða uppeldis- og kennslufræðum er æskileg
  • Farsæl reynsla af rekstri, stjórnun og skólaþróun er æskileg
  • Framúrskarandi hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Leiðtogafærni, metnaður og styrkur til ákvarðana
  • Þekking á þeim lögum, reglugerðum og öðrum opinberum fyrirmælum sem varða skólastarf
  • Þekking á möguleikum og takmörkunum stafrænnar tækni í skólastarfi
  • Skipulagshæfni og góð yfirsýn
  • Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti

Sótt er um starfið í gegnum vef Hagvangs: Umsókn skólastjóri Grunnskóla Þorlákshafnar

Hafnarfréttir

Hafnarfréttir