Ég flutti í Ölfus vorið 2023 til að vera nær fjölskyldunni sem keypti íbúð hér í Þorlákshöfn. Það hefur reynst mér afar dýrmæt ákvörðun. Ég bý í göngufæri frá barnabörnunum, get tekið þátt í daglegu lífi og verið hluti af uppvexti þeirra. Þetta er einmitt það sem smærra samfélag býður upp á – nálægð, ró og aðgengi að því sem skiptir máli í daglegu lífi eins og að leikskóla, sundlaug, bókasafni og útivist.
Eins og margir nýir íbúar hef ég þó líka upplifað áskoranir. Það reyndist mér ekki einfalt að finna starf við hæfi í sveitarfélaginu og launakjör á vegum sveitarfélagsins endurspegluðu ekki þá reynslu og getu sem ég bý yfir. Atvinnutækifæri eru að mörgu leyti bundin við fáa geira og því þurfa margir að sækja vinnu út fyrir sveitarfélagið, þrátt fyrir að vilja starfa nær heimili sínu.
Þetta eru verkefni sem þarf að takast á við og þar tel ég að stefna Samfylkingarinnar og félaga í Ölfusi skipti máli. Þar er lögð áhersla á fjölbreyttara atvinnulíf, markvissa uppbyggingu í kringum höfnina, stuðning við nýsköpun og samstarf við nágrannasveitarfélög. Markmiðið er að skapa fleiri og fjölbreyttari störf í heimabyggð.
Það sem heillar mig mest við Ölfus er náttúran, víðáttan, fjaran og lyktin af sjónum. Þess vegna tel ég mikilvægt að skipulag byggðar taki mið af þessum verðmætum. Ég fagna því að í stefnu Samfylkingarinnar er lögð áhersla á að vernda hafnarsvæðið fyrir uppbyggingu atvinnulífs og tryggja að uppbygging íbúðarhúsnæðis þrengi ekki að höfninni, sé vönduð og í sátt við umhverfið.
Nú styttist líka í að ég komist á þann aldur að ég hætti að vinna. Þegar ég horfi fram á efri ár hef ég einnig velt fyrir mér stöðu eldri borgara í sveitarfélaginu. Þar er mikilvægt að bæta upplýsingagjöf og tryggja aðgengi að þjónustu. Samfylkingin leggur áherslu á heildstæða stefnu í málefnum eldra fólks, aukið félagslíf, betri ráðgjöf og lifandi samkomustað á Níunni þar sem fólk getur hist og tekið þátt.
Ég sé mikla möguleika í Ölfusi. Með markvissri stefnu, opnu samtali og vilja til að gera betur getum við byggt samfélag þar sem enn fleiri njóta þess að búa, starfa og eldast. Allt í nánd við fólkið sitt.
Hjördís Erlingsdóttir
Frambjóðandi í 13. sæti á lista Samfylkingar og félaga í Ölfusi

