Börnin í fyrirrúmi í Ölfusi

Sveitarfélagið Ölfus hefur löngum verið í fararbroddi þegar kemur að uppbyggingu, umgjörð og aðbúnaði barna- og unglinga og teljum við okkur geta litið stolt um farinn veg. Við erum meðvituð um að velferð samfélagsins byggir ekki síst á því mikilvæga verkefni að skapa börnum okkar eins næringarríkan jarðveg og mögulegt er til að vaxa og dafna við nám og leik.

Hraunheimar – nýr og glæsilegur leikskóli

Eins og flestir hafa tekið eftir þá hefur glæsileg bygging risið í nýju hverfi vestan við eldri byggðina sem hýsir nú nýjan og hlýlegan leikskóla sem hlotið hefur nafnið Hraunheimar. Við hönnun skólans var sérstaklega litið til þarfa bæði starfsfólks og nemenda og var horft til þess að hanna skólann með notalega náttúrutengingu í huga er kom að efnis- og litavali. Starfsfólk skólans hefur unnið frábært starf við að undirbúa og skipuleggja starf skólans og hafa fyrstu mánuðir nemenda skólans gengið vel. Leikskólinn er fjögurra deilda en á komandi kjörtímabili stendur til að bæta við tveimur deildum. 

Bergheimar

Með tilkomu nýs leikskóla hefur verið tekið tillit til þeirra foreldra sem kjósa aukið val er kemur að skólastefnu og ólíkum áherslum í starfi barna á leikskólaaldri. Bergheimar er einkarekinn leikskóli sem starfar eftir hugmyndafræði Hjallastefnunnar. Leikskólinn er 6 deilda og var stækkaður á kjörtímabilinu til þess að koma í veg fyrir biðlista á meðan leikskólinn Hraunheimar var í byggingu. Gaman er að segja frá því að ánægja foreldra með leikskólastarfið kom einstaklega vel út í foreldrakönnun sem lögð var fyrir á árinu og mælast foreldrar barna á Bergheimum meðal þeirra ánægðustu á landinu.

Heimgreiðslur og gjaldfrjáls leikskóli

Tilgangur heimgreiðslna er að gera foreldrum kleift að vera lengur heima með barni sínu að loknu fæðingarorlofi hvort sem þeim gefst kostur á daggæslu eða ekki. Foreldrar eiga einfaldlega valið og geta þá nýtt sér heimgreiðslur þann tíma sem þeir kjósa. Heimgreiðslurnar hljóða nú upp á 108.500 kr á mánuði. Þá má einnig geta þess að nú nýverið var tekin sú ákvörðun að gera leikskólana gjaldfrjálsa í allt að 36 klst. á viku og létta þannig undir með barnafjölskyldum.

Ný viðbygging við Grunnskólann í Þorlákshöfn

Spennandi áform eru framundan við Grunnskólann í Þorlákshöfn þar sem fyrirhuguð viðbygging var að ljúka útboði. Stefnt er að því að framkvæmdir hefjist á næstu vikum og mun sú viðbót efla aðstöðu nemenda og starfsfólks enn frekar með sérstaka áherslu á list-, tækni- og verkgreinar. Við sem höfum verið svo lánsöm undanfarin ár að hafa fengið að vinna að uppbyggingu sveitarfélagsins með beinum hætti erum sannarlega meðvituð um mikilvægi þess að gefa skapandi greinum aukið vægi. Í okkar huga er alveg ljóst að slíkar greinar eru nútíma einstaklingum afar mikilvægar enda ýta þær undir skapandi og lausnamiðaða hugsun og aukið hugvit. Auk list-, tækni- og verkgreina fáum við aukið rými fyrir almenna kennslu til að geta brugðist vel við ört vaxandi nemendafjölda. Þá mun nýja viðbyggingin hýsa glæsilegt skólabókasafn sem og afar skemmtilegt opið vinnurými sem býður upp á marga skemmtilega notkunarmöguleika. Auk viðbyggingarinnar færist stuðningsverið Bjarg í nýtt og endurbætt rými sem verður sérhannað að þörfum þeirra barna sem þar stunda sitt nám.

Nýjar rennibrautir við útisundlaugina

Eins og flestir hafa sennilega tekið eftir þá hafa risið tvær nýjar og glæsilegar rennibrautir við útisundlaugina. Fyrir er afar góð sundaðstaða fyrir yngri börn í yfirbyggðri innilaug sem hefur jafnan haft mikið aðdráttarafl fyrir fjölskyldur víða að. Nýju rennibrautirnar hafa hins vegar laðað að enn fleiri fjölskyldur enda henta þær frekar eldri börnum, sprækum foreldrum, ömmum og öfum. 

Fjölnota íþróttahús

Á næsta kjörtímabili stendur til að reisa fjölnota íþróttahús í grennd við önnur íþróttamannvirki. Sú viðbót mun efla íþróttastarf til mikilla muna og auka möguleika ýmissa hópa til íþróttaiðkunar, sérstaklega yfir vetrartímann.

Nýtt skólaeldhús

Í sveitarfélaginu hefur nú verið tekið í gagnið nýtt skólaeldhús. Þar er eldaður hollur og næringarríkur matur fyrir nemendur í grunnskólanum, Hraunheimum auk eldri borgara. Með þessu er nú til miðlæg og nútímaleg aðstaða sem stuðlar að bættri þjónustu fyrir þessa mikilvægu hópa samfélagsins. 

Leikvellir og útisvæði

Á komandi kjörtímabili er stefnt að því að fjölga leikvöllum og endurnýja þá sem fyrir eru, bæði á skólalóð sem og annars staðar í bæjarfélaginu. Einnig er fyrirhugað að setja upp sparkvöll í samstarfi við knattspyrnufélagið Ægi. Þá er gaman að geta þess að fyrirhuguð eru fjölnota útisvæði sem nýtast jafnt til leikja og vetrarútivistar barna og fjölskyldna þar sem m.a. sígrænn gróður fær að njóta sín allt árið um kring. 

Aukin þjónusta og snemmtæk íhlutun

Undanfarin ár hefur verið unnið ötullega að uppbyggingu innviða í formi aukinnar þjónustu við börn og unglinga enda mikil áhersla verið lögð á snemmtæka íhlutun í skólum sveitarfélagsins. Í henni felst að bregðast snemma við ólíkum þörfum barna en með því er stuðlað að bættri námsframvindu, aukinni vellíðan og sterkari grunnstoðum í þeirra lífi. Þessar áherslur hafa jafnframt skilað sér í auknum stuðningi við fjölskyldur og markvissara starfi innan skólasamfélagsins. Ríkidæmi okkar felst þó ekki síst í miklum mannauði innan veggja skólanna og nú hefur sá þriðji bæst við sem er ekki síður mannaður reyndu og góðu fagfólki.

Jöfn tækifæri allra barna og unglinga

Íbúar í Ölfusi hafa lengi notið góðs af frístundastyrknum sem sveitarfélagið veitir börnum og ungmennum. Styrkurinn er hugsaður til að styðja við þátttöku í skipulögðu tómstundastarfi hvort sem um er að ræða íþróttir, tónlist, listir eða annað frístundastarf. Með þessu er leitast við að tryggja að öll börn hafi jöfn tækifæri til að stunda áhugamál sín. Frístundastyrkurinn er því mikilvægur liður í jafnrétti til tækifæra og leggur grunn að heilbrigðu og fjölbreyttu uppeldi barna í samfélaginu. Styrkurinn hljóðar upp á 56.300 kr og er í boði strax frá fæðingu barns til 18 ára aldurs og ætti að tryggja að öll börn geti stundað a.m.k. eina íþróttagrein eða aðrar tómstundir að eigin vali. 

Barnvænt samfélag í öllu tilliti

Að ofansögðu er óhætt að segja að Sveitarfélagið Ölfus sé barnvænt samfélag. Það þýðir að við leggjum áherslu á að allt starf sveitarfélagsins hafi það að leiðarljósi sem er barninu fyrir bestu. Þetta gildir líka í skipulagsmálum. Við veljum staðsetningu nýrra hverfa og heimila með það í huga að börnin njóti góðs af. Á undanförnum árum hefur mikið verið byggt af nýjum heimilum í Þorlákshöfn og fjölmargar barnafjölskyldur hafa flutt hingað. Það er ekki tilviljun enda höfum við markvisst tryggt að innviðirnir styðji við þarfir barna og fjölskyldna. 

Framsýni í skipulagsmálum

Þjónustuásinn sem liggur frá íþróttahúsinu að bæjarskrifstofunum hýsir stærstan hluta þeirrar þjónustu sem börnin okkar sækja. Þar má finna sundlaugina, grunnskólann, fótboltavöllinn, frjálsíþróttaaðstöðuna, fimleikahúsið, bókasafnið, félagsmiðstöðina og fallega skrúðgarðinn okkar sem allt er í göngufæri hvert frá öðru. Slík nálgun auðveldar daglegt líf barna og foreldra, styður við öryggi í umhverfinu og eykur líkur á virkri þátttöku barna í frístundastarfi. Með þessum hætti myndast heildstæð heilsueflandi menning þar sem börn geta gengið á milli án þess að þurfa á akstri að halda. Í ljósi þessa teljum við mikilvægt að skipulag nýrra heimila sé unnið með hagsmuni barna í forgrunni. 

Við getum því með stolti sagt að börnin og fjölskyldur þeirra eru í fyrirrúmi í Sveitarfélaginu Ölfusi og okkar sameiginlega hlutverk er að sjá til þess að svo verði áfram.

Erla Sif Markúsdóttir, 4. sæti D-listans
Guðlaug Einarsdóttir, 5. sæti D-listans

Hafnarfréttir

Hafnarfréttir