Við frambjóðendur D-listans bjóðum fram krafta okkar til áframhaldandi uppbyggingar samfélagsins í Ölfusi. Við ætlum að halda áfram að vinna af ábyrgð fyrir ykkur. Á undanförnum árum hefur sveitarfélagið tekið stór skref fram á við og árangurinn sést víða í blómlegu atvinnulífi og fjölgun íbúa, bættri þjónustu, öflugri innviðum og sterkari fjárhagsstöðu.
Árangurinn hingað til:
- Þjónusta efld svo mjög að íbúar mælast nú þeir ánægðustu á landinu öllu.
- Leikskólinn Hraunheimar tekinn í notkun.
- Tókum upp gjaldfrjálsan leikskóla í allt að 36 klst. á viku þannig að 40 tímar kosta nú einungis 4.400 kr.
- Nýjar rennibrautir teknar í notkun við sundlaugina.
- Stækkun grunnskóla dreifbýlisins í Hveragerði.
- Veruleg fjölgun lóða fyrir atvinnurekstur og íbúðir.
- Höfnin stækkuð verulega.
- Frístundastyrkur hækkaður og nær nú til allra barna frá fæðingu til 18 ára aldurs.
- Álagningarhlutfall fasteigna lækkað um 44%.
- Félagsleg liðveisla aukin.
- Heimgreiðslur til foreldra teknar upp.
- Nýtt skólaeldhús byggt og aðstaða stórbætt.
- Skólaakstur stóraukinn.
- Skuldahlutfall sveitarfélagsins lækkað.
- Göngu- og hjólastígum fjölgað.
- Félagsþjónusta og barnavernd efld.
- Vinna hafin við hönnun og byggingu nýrrar viðbyggingar við skólann.
- Nýr miðbær skipulagður og framkvæmdir hafnar.
- Ný deild fyrir dagþjónustu aldraðra byggð og tekin í notkun.
- Aukin stoðþjónusta, svo sem þjónusta sálfræðinga, talmeinafræðinga o.fl.
- Grænir iðngarðar mótaðir.
- Miklar fjárfestingar í vatnsveitu dreifbýlis.
- Stuðningur við félagsstarf eldri borgara aukinn.
- Nýtt hverfi fyrir fjölskyldufólk byggt og tekið í notkun.
- Aðkoma að Þorlákshöfn bætt með áherslu á líflegt og fallegt umhverfi.
- Nýjum fyrirtækjum fundin staðsetning og tryggð þjónusta.
Við viljum halda áfram að byggja upp öflugt samfélag þar sem þjónusta, atvinnulíf og lífsgæði íbúa eru í forgrunni. Við vitum að ýmislegt sem hefur verið gert, eða ekki gert, er umdeilt. Það er eðli starfs bæjarfulltrúa að þurfa, oft á tíðum, að taka erfiðar ákvarðanir og vega ólík sjónarmið hvert gegn öðru. Stundum eru mistök gerð, þá skiptir máli að staldra við, endurskoða, leiðrétta og læra af mistökunum. Við munum ávallt leggja okkur fram við að hlusta á raddir bæjarbúa og taka mið af þeim sjónarmiðum sem íbúar hafa fram að færa. Við teljum gott samtal, samvinnu og gagnkvæmt traust lykilinn að áframhaldandi farsælli uppbyggingu samfélagsins.
Frambjóðendur D-listans í Ölfusi

