Öflug þjónusta og aukin lífsgæði í Ölfusi

Þjónustukönnun Gallup fyrir árið 2025 staðfestir með skýrum hætti þann árangur sem náðst hefur í uppbyggingu þjónustu og lífsgæða í Sveitarfélaginu Ölfusi á undanförnum árum. Niðurstöðurnar eru sérstaklega ánægjulegar enda mælist Ölfus yfir landsmeðaltali á öllum þeim 13 þjónustuþáttum sem kannaðir voru meðal 20 stærstu sveitarfélaga landsins.

Þegar horft er til sveitarfélaga með 3.000–8.000 íbúa kemur enn betur í ljós hversu sterk staða Ölfuss er. Ánægja íbúa mælist mest í Ölfusi á 9 af 13 þjónustuþáttum. Sérstaklega vekur athygli hversu ánægðir íbúar eru með þjónustu við börn og fjölskyldur, grunnskóla, leikskóla og aðstöðu til íþróttaiðkunar. Þá mælist Ölfus einnig efst þegar spurt er um sveitarfélagið sem stað til að búa á, skipulagsmál, menningarmál og þjónustu sveitarfélagsins í heild.

Ekki síður er ánægjulegt að sjá að hvergi mælist meiri ánægja með hvernig starfsfólk sveitarfélagsins leysir úr erindum íbúa. Það er skýr vitnisburður um fagmennsku, þjónustulund og metnað starfsfólks sveitarfélagsins sem á stóran þátt í þessum góða árangri.

Könnunin sýnir jafnframt að íbúar finna fyrir jákvæðri þróun samfélagsins. Um 73% telja búsetugæði hafa aukist á undanförnum árum og nær 90% þeirra sem tóku afstöðu telja þróunina hafa verið til batnaðar. Þá segjast 89% myndu mæla með því við vini og ættingja að flytja í Ölfus.

Þótt árangurinn sé afar sterkur sýna niðurstöðurnar einnig hvar tækifæri eru til frekari umbóta, meðal annars í málaflokkum sem snúa að þjónustu við eldri borgara, fatlaða, sorphirðu og gæðum umhverfis. Það er mikilvægt að nýta slíkar upplýsingar sem leiðarljós til áframhaldandi þróunar og framfara.

Frambjóðendur D-listans vilja halda áfram á þessari braut af ábyrgð og kjölfestu fái þeir til þess umboð frá íbúum í komandi sveitarstjórnarkosningum. Árangurinn sem náðst hefur sýnir að markviss uppbygging, ábyrg fjármálastjórn og skýr framtíðarsýn skila raunverulegum árangri fyrir samfélagið allt.

Niðurstöður þjónustukönnunarinnar eru skýr staðfesting á því að Ölfus er á réttri leið. Með öflugu starfsfólki, markvissri uppbyggingu og góðu samstarfi við íbúa verður áfram unnið að því að styrkja þjónustu, innviði og lífsgæði í sveitarfélaginu.

Hafnarfréttir

Hafnarfréttir