Í dag er gengið til sveitarstjórnakosninga um gjörvallt landið. Lesendur Hafnarfrétta hafa að öllum líkindum orðið varir við greinaskrif frambjóðenda undanfarnar vikur. Það er mikilvægt að hafa vettvang til skoðanaskipta og til að koma málefnum sínum á framfæri þannig að það komi skýrt og örugglega fyrir augu kjósenda í Ölfusi. Ritstjóri Hafnarfrétta vill þakka frambjóðendum og fylgjendum beggja lista fyrir málefnalega pistla. Hafnarfréttir eru til þess arna gerðar.
Kjörfundur í Ölfusi hófst kl. 9 í morgun og verður lokað kl. 22. Kjördeildir í Ölfusi eru nú tvær og eru þær báðar í Ráðhúsi Ölfuss, Hafnarbergi 1 í Þorlákshöfn:
- Í kjördeild 1 kjósa þeir sem hafa heimilisfang (bæjarnafn eða götuheiti) sem byrja á bókstöfunum A-K
- Í kjördeild 2 kjósa þeir sem hafa heimilisfang (bæjarnafn eða götuheiti) sem byrja á bókstöfunum L-Ö og kjósendur sem eru með ótilgreint lögheimili í Sveitarfélaginu Ölfusi.
Sérstök athygli er vakin á því að kjósendum er skylt að gera kjörstjórn grein fyrir sér með því að framvísa persónuskilríkjum með mynd. Þeir sem notast við rafræn ökuskírteini verða að vera með island.is appið í símanum.
Hægt verður að líta við á framboðsskrifstofum bæði S-lista og D-lista í dag og fá sér kaffisopa og kræsingar. Einnig verða kosningavökur í boði beggja framboða.
Samfylkingin og félagar í Ölfusi, S-listi verður með heitt á könnunni frá kl. 9-21 að Reykjabraut 1 og kosningavaka á Heima Bistro frá kl. 22.
D-listinn býður einnig í kosningakaffi í gamla Olíshúsinu frá kl. 10-17. Kosningavaka þeirra verður á sama stað frá kl. 21 og þar mun hljómsveitin Fálkar sjá um fjörið.
Nýtum kosningaréttinn í dag og fögnum því að eiga frábært fólk í okkar samfélagi sem er tilbúið að vinna saman af heilum hug fyrir okkur íbúana.

