Í kvöld, föstudagskvöld, fá Þórsarar lið Snæfells í heimsókn í Domino’s deild karla í körfubolta.
Þórsarar hafa spilað vel að undanförnu og unnið tvo leiki í röð eftir að hafa tapað klaufalega fyrir Grindavík í fyrsta leik.
Snæfell leitar aftur á móti að sínum fyrsta sigri í deildinni og má því reikna með því að þeir mæti hungraðir til leiks.
Leikur hefst klukkan 19:15 í Icelandic Glacial höllinni í Þorlákshöfn.