B-listi Framfarasinna í Ölfusi vann stórsigur í sveitastjórnarkosningunum í gær. Flokkurinn hlaut 54,8% greiddra atkvæða og náði hreinum meirihluta í bæjarstjórn.
D-listi Sjálfstæðisflokksins heldur tveimur mönnum með 25,2% atkvæða og Ö-listi Félagshyggjufólks heldur einum manni með 20% atkvæða.
Bæjarstjórnin:
- (B) Sveinn Samúel Steinarsson
- (B) Anna Björg Níelsdóttir
- (D) Ármann Einarsson
- (Ö) Guðmundur Oddgeirsson
- (B) Jón Páll Kristófersson
- (B) Ágústa Ragnarsdóttir
- (D) Þrúður Sigurðardóttir