Mánudaginn 29. september kl. 17:00 verður formleg opnun á Heilsustígnum í Þorlákshöfn og fer opnunin fram við Íþróttamiðstöðina. Sveitarfélagið Ölfus hefur haft frumkvæði að gerð heilsustígsins í samvinnu við Hermann Georg Gunnlaugsson hjá Heilsustígum ehf.
Heilsustígurinn er hugsaður til að bæta lýðheilsu almennings og aðgengi ferðamanna að spennandi útivistarmöguleikum með uppsetningu þrek- og æfingastöðva. Upphaf og lok göngustígsins er við Íþróttamiðstöðina og er hann 3,4 km að lengd. Alls eru 15 æfingastöðvar meðfram stígnum og hver æfingastöð samanstendur af æfingum sem reyna á mismunandi vöðvahópa. Æfingarnar skiptast í þol, styrk og liðleika. Upplýsingarskilti um framkvæmd æfinga eru við hverja æfingastöð.
Allir sem vilja er síðan boðið að ganga hringinn með leiðsögn þar sem stoppað verður við hverja stöð og útskýrt lauslega hvað æfingar er hægt að gera á hverri stöð fyrir sig.