Emilía Hugrún Lárusdóttir sigraði í Söngkeppni Nemendafélags Fjölbrautaskóla Suðurlands sem fram fór í íþróttahúsinu Iðu á Selfossi í kvöld. Sunnlenska.is greindu fyrst frá.
Emilía Hugrún söng I’d Rather Go Blind eftir Ettu James. „Emilía Hugrún lagði svo sannarlega sálina í flutninginn og hreif hug og hjörtu dómnefndar og áhorfenda sem fylltu Iðu í kvöld,“ segir í frétt Sunnlenska.
Hafnarfréttir óska Emilíu innilega til hamingju með sigurinn.