Aðsend grein um málefni Heidelberg
Í grein sem nokkrir bæjarfulltrúar Ölfuss birtu í Heimildinni á dögunum og nú einnig á vef Hafnarfrétta um helgina er að finna ýmsar rangfærslur sem rétt er að svara. Heidelberg fagnar því að umræða fari fram um verkefnið nú í aðdraganda íbúakosningar en vissulega er þá mikilvægt að rétt sé farið með staðreyndir, ekki hvað síst þegar í hlut eiga kjörnir fulltrúar með fullan aðgang að staðreyndum málsins. Það er gott og eðlilegt að fólk hafi skoðanir á stórum verkefnum og mikilvægt að allir íbúar kynni sér verkefnið vel áður en kosið verður um framtíð þess. Að gera fólki upp illan hug og setja staðreyndir í annarlegt ljós verður hins vegar ekki til annars en að vekja úlfúð og skipa fólki í fylkingar.
Fyrirtækið hefur lagt mikið upp úr upplýsingagjöf og gagnkvæmu samtal við Þorlákshafnarbúa og nágranna. Það getur varla talist maklegt að halda því fram að íbúafundir Heidelberg hafi verið einhliða. Tilgangur þeirra hefur einmitt verið að fá sjónarmið íbúa fram og stór hluti fundanna hefur farið í góð og gagnleg samtöl. Við höfum gert okkar besta í að svara öllum spurningum sem hafa komið fram og verkefnið hefur tekið umtalsverðum breytingum frá því að lagt var upp með það m.a. vegna þeirra áhyggja sem þar hafa komið fram.
Greinin gefur hins vegar ágætt tækifæri til að fara vel yfir allar þær breytingar sem orðið hafa á verkefninu frá því það var fyrst kynnt. Allar þær breytingar hafa tekið mið af þeim sjónarmiðum sem fram hafa komið á íbúafundum og af hálfu bæjarstjórnar Ölfus í undirbúningsferlinu.
Ný staðsetning
Eitt stærsta áhyggjuefni íbúa á fyrsta íbúafundi sem Heidelberg hélt var staðsetning verksmiðjunnar svo nálægt byggðinni. Sú breyting sem orðið hefur þar á er að verksmiðjan hefur verið færð frá lóð við núverandi Hafnaraðstöðu í Skötubót og vestur fyrir byggðina að Keflavík. Í upphafi greinar sinnar saka höfundar Heidelberg um að hafa vísvitandi kynnt óraunhæfa hugmynd um framkvæmd verkefnisins til að auka líkur á samþykki annarrar og smærri útgáfu þess. Þessar ávirðingar eru ekki studdar neinum frekari rökstuðningi og held ég að hverjum sem sótt hefur íbúafundina eða fylgst með gangi máli sé fulljóst að það er fjarri sanni. Persónulega hefði ég hvorki hugmyndaflug né nokkurn áhuga á að koma nálægt slíkum vinnubrögðum.
Í upphafi sóttist Heidelberg eftir allt að 50 þúsund fermetra lóð í nágrenni hafnar í Þorlákshöfn og var af hálfu bæjaryfirvalda bent á lóð við Skötubótina. Verkefnið var á þessum tímapunkti alveg ómótað, þar með talið með hvaða hætti og þá hvar efnið yrði unnið. Eftir því sem þróun verkefnisins vatt fram og ákveðið var að fullvinna efnið hér á landi varð ljóst að erfitt yrði að koma verksmiðjunni fyrir á þeirri lóð sem félagið hafði fengið úthlutað.
Viðbrögð bæjarstjórnar og fyrsta íbúafundar við kynningu á verkefninu kölluðu augljóslega á endurskoðun á þessari nálgun. Því hófst könnun á því hvort unnt yrði að reisa höfn við verksmiðjuna ef hún yrði staðsett vestan við byggðina, á stærri lóð við Keflavík, sem betur hæfði umfangi verkefnisins og væri fjær byggð. Fyrstu athuganir gáfu fyrirheit um að slíkt yrði mögulegt og hefur verkefnið verið þróað áfram með þá staðsetningu sem eina valkostinn síðan. Með hliðsjón af þessari niðurstöðu var samkomulag var gert við Bæjarstjórn Ölfus í október 2023 þar sem fyrri lóðum var skilað inn og vilyrði veitt fyrir nýrri og stærri lóð við Keflavík. Sú afgreiðsla Bæjarstjórnar var samþykkt með 6 atkvæðum en einn bæjarfulltrúi sat hjá.
Efnisflutningar á landi minnkað um 80%
Í öðru lagi er varpað fram þeirri spurningu hvort verið sé að gefa afslátt af öryggi með efnisflutningum landleiðina úr Þrengslum að verksmiðju. Vísað er þar til eins þeirra skilyrða sem Bæjarstjórn Ölfus setti frekari þróun verkefnisins, þ.e. að ekki væri „unnt að hefja stórfellda efnisflutninga úr Litla-Sandfelli um núverandi veg til Þorlákshafnar“. Líkt og greinarhöfundar taka fram var þar vísað til flutnings á allt að 3 milljónum tonna af efni á ári.
Heidelberg brást við þessum athugasemdum með því að horfa til annarra mögulegra efnisnáma í sjó við Landeyjarsand. Umhverfismat slíkrar vinnslu stendur nú yfir. Er þar gert ráð fyrir að af 1,5 milljónum tonna af efni sem unnið yrði árlega kæmi um tveir þriðju hlutar þess efnis úr sjó og allt að þriðjungur úr Litla-Sandfelli. Landflutningar með efni hafa því verið minnkaðir um liðlega 80% frá fyrstu hugmyndum.
Rétt er að halda til haga í þessu samhengi að áhyggjur af miklu umfangi landflutninga snéru einnig að mögulegum og umfangsmiklum flutningum frá Vík til Þorlákshafnar. Það verkefni er ótengt verkefni Heidelberg og ekki liggur fyrir neitt frekar um þau áform.
Uppdæling sjávarefnis uppistaða efnisvinnslu
Til að draga úr álagi á vegakerfið leitaði Heidelberg að öðrum efnisnámum sem nýta mætti í verkefnið. Rannsóknir leiddu í ljós að setlög þau sem finna má í kringum Landeyjarhöfn höfðu mjög áþekka efniseiginleika og móberg úr Litla-Sandfelli. Rannsóknir Heidelberg í tengslum við yfirstandandi umhverfismat hafa einnig leitt í ljós að áhrif slíks efnisnáms yrðu að mestu óveruleg. Áhugasamir eru hvattir til að kynna sér umhverfismatsskýrslu hér, en hún er til umsagnar til 16. maí nk. Efnistökusvæðið allt sem sótt hefur verið um er 96 ferkílómetrar að stærð en áform gera ráð fyrir að árleg efnistaka fari fram innan 0,5 km2 svæðis á ári hverju og unnt verði að færa efnistöku til á milli ára, svo lágmarka megi staðbundin áhrif hennar.
Greinarhöfundar benda réttilega á að umrætt svæði hafi meðal annars að geyma mikilvæg hrygningarsvæði. Í því samhengi er þó rétt að halda því til haga að þau liggja meðfram öllu Suður- og Vesturlandi og fyrirhugað vinnslusvæði því agnarsmátt í hlutfalli af svæðinu öllu. Engu að síður eru fjölmargar mótvægisaðgerðir fyrirhugaðar við vinnsluna til að lágmarka möguleg áhrif hennar á fiskistofna.
Jákvæð loftlagsáhrif
Loks er í greininni reynt að gera verulega jákvæð áhrif þessa verkefnis í loftlagsmálum tortryggileg. Sementsframleiðsla ber ábyrgð á um 8% losunar af mannavöldum í heiminum í dag. Sement er eitt algengasta og útbreiddasta byggingarefni í heiminum sökum styrks steinsteypu og langs endingartíma steyptra mannvirkja. Mikilvægt er því að sementsframleiðendur leiti allra leiða til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda í framleiðslunni.
Verkefni Heidelberg í Þorlákshöfn er einmitt dæmi um eina leið til að minnka kolefnisspor sements verulega. Með því að nota malað móberg í stað sementsgjalls má minnka kolefnisspor sements verulega þar sem kolefnisspor hins fyrrnefnda (með allri vinnslu og flutningi til Evrópu) , er aðeins um 4% af kolefnisspori sementsgjalls. 1,5 milljónir tonna af móbergi myndi því spara um 1,2 milljónir tonna í losun kolvítsýrings út í andrúmsloftið á ári hverju. Það samsvarar liðlega 40% af árlegri losun hér á landi sem telst á beina ábyrgð Íslands á ári hverju. Áhrifin eru því umtalsverð.
Í grein bæjarfulltrúanna er því haldið fram að nægt framboð sé af sambærilegum efnum við móberg í Evrópu horft til næstu áratuga. Helsta efnið sem telst sambærilegt er kolaaska, sem er m.a. hliðarafurð frá kolaorkuverum. Þeim hefur farið verulega fækkandi á liðnum árum. Á sama tíma hefur eftirspurn eftir kolaösku aukist jafnt og þétt og horfur eru á að sú þróun muni halda áfram. Verðþróun kolaösku endurspeglar þessa umframeftirspurn hvað best en verð hennar hefur margfaldast á fáum árum. Eitt er það að það geta varla talist góð rök gegn risastóru loftslagsverkefni að það gangi hægt að loka mengandi kolaorkuverum annars staðar í Evrópu. Vonandi er að það verkefni sækist hraðar næstu ár en hingað til. Hitt er svo að væri nægt framboð kolaösku fyrir hendi í Evrópu mætti spyrja sig af hverju fyrirtæki á borð við Heidelberg væri að verja fleiri árum í rannsóknir á öðrum mögulegum efnum og hefði hug á tugmilljarða fjárfestingu til slíkrar vinnslu.
Hægt er að kynna sér enn betur jákvæð loftlagsáhrif verkefnisins í umhverfismatsskýrslu um verksmiðjuna hér.
Verðmæt störf og auknar tekjur fyrir sveitarfélagið
Eftir stendur að hér er um mjög áhugavert loftlagsverkefni sem skila mun miklum efnahagslegum ávinningi fyrir nærsamfélagið í Ölfusi. Gert er ráð fyrir að í tengslum við framleiðsluna muni skapast 70-90 vel launuð störf af ýmsu tagi. Þörf verður á rekstrarmenntuðu fólki, tæknifræðingum, verkfræðingum, vélfræðingum, rafvirkjum og sérhæfðu starfsfólki í rekstur ýmis konar tækjabúnaðar auk bílstjóra, áhafna á dæluskip og svo mætti áfram telja. Þessi störf yrðu góð viðbót við ört dafnandi atvinnulíf í Þorlákshöfn.
Heildarfjárfesting er áætluð um 70 milljarðar króna að hafnaruppbyggingu meðtalinni. Ljóst er að þessar fjárfestingar munu skapa sveitarfélaginu umtalsverðar tekjur á hverju ári í formi fasteignagjalda auk útsvars af launum starfsfólks. Þá gerir samkomulag okkar við Ölfus ráð fyrir því að höfnin verði afhent sveitarfélaginu án endurgjalds þegar allur stofnkostnaður hennar hefur verið greiddur upp.
Ég hvet íbúa Ölfus eindregið til að kynna sér málið betur á heimasíðu verkefnisins, www.heidelberg.is . Þar er meðal annars að finna umhverfismatsskýrslur sem verkefninu tengjast, skipulagsuppdrátt þann sem kosið verður um í komandi íbúakosningum og ýmsan annan fróðleik um verkefnið. Loks vonast ég til að sjá sem flesta íbúa á kynningarfundi um verkefnið í Versölum, þriðjudaginn 21. maí næstkomandi.
Þorsteinn Víglundsson
Talsmaður Heidelberg á Íslandi