Molta fyrir íbúa sveitarfélagsins

Ákveðið hefur verið að bjóða íbúum sveitarfélagsins uppá Moltu. Moltan kemur 3. maí.  Moltan verður staðsett á gámasvæðinu og hægt að ná sér í moltu á opnunartíma. 

Athugið að ekki er gert ráð fyrir að íbúar taki of mikið. Hámark ein meðalstór kerra á heimili.

Molta er tilvalin til þess að setja td. ofan á trjábeð.

Þegar moltan er búin til hitnar hún mjög mikið og má því segja að hún sé gerilsneydd og án allra illgresisfræja. Moltan samanstendur af lífrænum úrgangi s.s. elduðum matarleifum, ávöxtum, grænmeti og kurluðum trjágreinum. Ferlið tekur um 4 mánuði og nær hitinn á ferlinu uppí 70°C.

Með bestu kveðju og von um að fólk nýti sér þetta.

Þjónustumiðstöð Sveitarfélagsins Ölfuss.