Tveir dagskrárliðir fóru fram í dag. Fyrst var það sunlaugarpartý fyrir 10 ára og eldri þar sem Diskótekið Dísa hélt krökkunum uppteknum í skemmtilegum leikjum, sprelli og dansi í tvo klukkutíma. Vel mætt og mikil stemning. Krakkarnir voru prúð og stillt og fá mikið hrós fyrir. Veðrið lék við sundlaugargesti.
Um kvöldið var svo leikjakvöld í Skrúðgarðinum þar sem ungir og aldnir komu saman í blíðunni. Krakkarnir léku sér í skotbolta, Kubbi og fleiri leikjum.