Skammdegishátíðin Þollóween nálgast óðfluga en hún verður haldin 28. október-3. nóvember í ár. Það eru að venju nokkrar duglegar nornir sem sjá um utanumhald og skipulag hátíðarinnar, allt í sjálfboðavinnu. Sveitarfélagið Ölfus styrkir hátíðina auk fjölmargra fyrirtækja svo hægt sé að gera hátíðina sem besta.
Þetta er í sjöunda sinn sem hátíðin er haldin og verður hún vinsælli með hverju árinu. Á dagskránni eru viðburðir sem flestir ættu að kannast við: Draugagarðurinn, Ónotaleg sundstund, draugahús 10. bekkjar, vasaljósaratleikurinn Grafir og bein, búningadagur í leik- og grunnskóla, hrollvekjur í Félagsmiðstöðinni og Frístund, Grikk eða gott, Nornasýning í galleríi undir stiganum, Draugahúsið og Nornaþing.
Þollóweennornirnar bíða spenntar eftir því að hræða líftóruna úr gestum og eiga saman hrollvekjandi viku í Þorlákshöfn. Þær mælast til þess að íbúar setji upp skreytingar við hús sín og híbýli og taki virkan þátt í gleðinni. Það má þess vegna byrja núna – október er tími nornanna.
Frekari fréttir af dagskrá Skammdegishátíðarinnar Þollóween munu birtast hér á Hafnarfréttum næstu daga og vikur.
Þorir þú?
