Sveitarfélagið Ölfus með jákvæðan rekstur upp á 938 milljónir

-höfum lækkað fasteignaskattshlutfall um 45% á fimm árum og hyggjum á innviðafjárfestingar upp á 9 milljarða. Framkvæmdir hefjast við nýjan miðbæ, menningarhús, knattspyrnuhús og margt fleira. Þorp er að verða að bæ.

Í gær var samþykkt fjárhagsáætlun fyrir Sveitarfélagið Ölfus.

Á forsendum þeirrar verðmætasköpunar sem tekist hefur að tryggja á seinustu árum eru nú allar forsendur til að skapa íbúum vaxandi velferð. Rekstur sveitarfélagsins skilar afgangi í bæði samstæðu og A hluta og stefnt er að innviðafjárfestingum sveitarfélagsins upp á tæplega 4 milljarða á næsta ári, og hátt í 9 milljarða á næstu 4 árum. 

Íbúar njóta góðs rekstur bæði í lægri gjöldum, aukinni þjónustu og sterkari innviðum. Fasteignaskattshlutfall er lækkað í 0,22 og hefur það þar með verið lækkað um 45% á sex árum.   

 Til grundvallar þessa trausta reksturs liggur uppgangur atvinnulífsins og ábyrgð meðferð almannafjár.  Markmiðið er að gera enn betur og sækja fastar fram á forsendum verðmætasköpunar.

Ráðgert er að rekstrartekjur samstæðu verði 5.797.730 þús. kr. og rekstrargjöld 4.362.750. þús.kr.  Þannig verði rekstarniðurstaða jákvæð sem nemur 938.042 þús. kr. eða rúmlega 16% af heildartekjum. Veltufé frá rekstri er áætlað 1.843.230 þús. kr. Fyrirhugað er að greiða langtímalán niður fyrir 239.980 þús. kr.

Sé litið til A-hluta má sjá að samkvæmt áætlun verða rekstrartekjur 4.948.530 þús. kr. og rekstrargjöld fyrir fjármagnsliði 4.019.119 þús. kr.  Áætlunin gerir ráð fyrir að A hluti verði rekinn með afgangi upp á rúmlega 704 milljónir.

Áætlunin ber í alla staði með sér að Ölfus er í sókn enda hefur íbúum á árinu fjölgað verulega.  Höfuð áhersla er því lögð á að mæta þörfum vaxandi samfélags með áherslu á fræðslu- og fjölskyldu mál svo sem með styrkingu félagsþjónustu og framkvæmdum við skóla.

Á komandi ári eru allverulegar fjárfestingar fyrirhugaðar enda verið að breyta þorpi í bæ.  Heildar eignfærðar fjárfestingar eru áætlaðar 1.900 millj. kr. nettó. Brúttó fjárfestingar eru vel á fjórða milljarð.  Þannig er áætlað að byggja nýjan leikskóla og koma þar með í veg fyrir biðlista, stækka höfnina, byggja nýjan miðbæ, hefja undirbúning að menningarhúsi og knattspyrnuhúsi svo eitthvað sé nefnt.  

Áfram verður haldið með þá stefnu að bjóða upp á hagkvæmar lóðir á kostnaðarverði og þannig reynt að mæta vaxandi húsnæðisþörf án auka skattlagningar á húsbyggjendur í formi lóðagjalda. 

Þegar litið er til næstu fjögurra ára má sjá þann mikla sóknarhug sem er í samfélaginu í Ölfusi því ráðgert er að nettó fjárfestingarkostnaður verði rúmlega 6 milljarðar og brúttó fjárfesting gæti því vel legið nærri 9 milljörðum.

Samhliða þessum mikilvægu þáttum er áfram allra leiða leitað til að létta álögur á bæjarbúa og styðja við bakið á þeim. 

Áfram verður haldið að bæta innviði og hvergi kvikað frá þeirri stefnu að fjölga íbúum á forsendum trausts atvinnulífs. Framundan eru stærstu atvinnufjárfestingar Íslandssögunnar þar sem m.a. er fyrirhugað að verja 300 til 400 milljörðum í uppbyggingu laxeldis á landi. Þá er unnið að fjölmörgum öðrum nýsköpunarverkefnum bæði í dreifbýli og þéttbýli. Má þar til að mynda nefna: baðlón gróðurhús, skelrækt, gagnaver, smáþörungarækt, drykkarvöruframleiðslu og marg fleira.  Til að þjónusta þennan mikla vöxt er unnið að stækkun hafnarinnar sem gerir mögulegt að þjónusta skip allt að 200 metra löng í stað þess 130 metra hámarks sem nú er.

Fjárhagsáætlunin nú ber það því með sér að trúin á framtíðina er rík og tækifæri til sóknar. Meðvituð um söguna er þó samhliða reynt af fremsta megni að taka mið af tvísýnum efnahagshorfum samhliða því sem ráðist er í stórar framkvæmdir, mikilvægu viðhaldi sinnt af einurð og brugðist við þeim mörgu áskorunum sem fylgja fjölgun íbúa og sterkum vilja til að bæta þjónustu við íbúa.

Elliði Vignisson, bæjarstjóri