Ný bók um þéttbýlisbyggð og horfin hús á Eyrarbakka

Bókin Eyrarbakki – Byggð í mótun –  Horfin hús 1878–1960 er komin út. Höfundar hennar eru Inga Lára Baldvinsdóttir og Magnús Karel Hannesson.  

Í bókinni er varpað ljósi á þróun þéttbýlis á Eyrarbakka á tímabilinu en ætla má að um 300 hús hafi staðið um lengri eða skemmri tíma á Bakkanum á árunum 1878–1960 en aðeins um 120 þeirra standa enn. Bókinni er skipt upp í þrjá inngangskafla, um þróun þéttbýlis á Eyrarbakka, húsgerðir eftir byggingarefnum og um útihús sem voru forsenda afkomu íbúanna til lands og sjávar. Síðan er fjallað um hvert og eitt þeirra 187 húsa sem horfin eru frá þessu tímabili og heimildir eru til um, líftíma þeirra, viðbyggingar og efnivið. Í inngangskafla að húsaskránni er farið yfir þær heimildir sem skráin byggir á. 

Bókin er ríkulega myndskreytt en í henni eru  birtar á þriðja hundrað ljósmyndir og um 50 tilgátuteikningar. Þeim er ætlað að gefa lesendum gleggri mynd af blómaskeiði þessa sögufræga verslunarstaðar Suðurlands og húsakostinum sem er til umfjöllunar.  

Margir koma við sögu í bókinni, en um 760 nöfn karla og kvenna, auk félagasamtaka, stofnana og báta er getið í henni. Bókin er innbundin í stóru broti og er 292 blaðsíður. Útgefandi er Laugabúð ehf. og bókin verður til sölu í samnefndri verslun á Eyrarbakka í sumar.