Á vef Ölfus Cluster kemur fram að Atvinnustefna Ölfuss 2025-2030 hafi verið samþykkt af bæjastjórn í desember síðastliðnum. Um er að ræða framtíðarsýn um uppbyggingu atvinnulífs og sjálfbæra þróun í sveitarfélaginu.
Sérstök vefsíða hefur verið opnuð þar sem finna má helstu áherslur og fylgjast með þeim verkefnum sem eru í gangi. Þannig verður stefnan aðgengileg og gagnsæ og allar helstu áherslur sýnilegar.
Vefsíða Atvinnustefnu Ölfuss 2025–2030
Haft var samráð við íbúa, fyrirtæki og hagaðila við gerð stefnunnar. Um var að ræða vinnustofur, hagsmunaráð og ábendingar frá íbúum um hvernig hægt væri að efla atvinnulíf í Ölfusi til frambúðar.
Áfram verður unnið í stefnunni eftir því sem samfélagið þróast og aðstæður breytast. Farið verður í að innleiða þá þætti sem fram komu í undirbúningsvinnunni og verða íbúar hafðir með í því samtali áfram.
Eru íbúar og atvinnurekendur hvattir til að kynna sér stefnuna og halda áfram að senda inn hugmyndir til að sem best verði staðið að þróun hennar.

