Kannabisrækt fannst í Þorlákshöfn

logregla01Seinasta föstudag var ökumaður stöðvaður á Eyrarbakkavegi á milli Eyrarbakka og Selfoss og í bifreið hans fundust um 1.000 gr. af kannabisefnum. Maðurinn var handtekinn og færður í fangageymslu.

Við frekari rannsókn málsins kom í ljós að ökumaðurinn var að koma frá geymsluhúsnæði í Þorlákshöfn þar sem kannabisræktun hafði verið í gangi. Þar var nýafstaðin ræktun og af ummerkjum að dæma mátti ætla að verið væri að flytja ræktunina á annan stað.

Sá handtekni viðurkenndi að hafa verið að aðstoða félaga sinn við að flytja efnin úr geymsluhúsnæðinu en hann sagðist ekki hafa komið að ræktuninni sjálfri.

Málið er í rannsókn og efnin verða send til efnarannsóknar.