D – listinn í Ölfusi tilkynnir að Elliði Vignisson verði bæjarstjóraefni flokksins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Elliði, sem er lærður klínískur sálfræðingur, hefur gegnt embætti bæjarstjóra í Ölfusi frá árinu 2018 og hefur rúmlega 25 ára reynslu af sveitarstjórnarmálum, meðal annars sem fyrrverandi bæjarstjóri Vestmannaeyja til 12 ára. Á hans tíma hefur Ölfus lagt áherslu á ábyrga fjármálastjórn, fjölgun íbúa, uppbyggingu innviða og stóraukna þjónustu við íbúa.
D – listinn veit að reynsla Elliða, þekking á rekstri sveitarfélagsins og skýr sýn á áframhaldandi uppbyggingu geri hann að sterkum kosti til að leiða Sveitarfélagið Ölfus næsta kjörtímabil. Flokkurinn mun á næstu vikum kynna nánar áherslur sínar undir kjörorðunum „Áfram af ábyrgð“.

