Á vef Sveitarfélagsins Ölfuss hefur auglýst eftir nýjum skólastjóra við Grunnskólann í Þorlákshöfn. Umsóknarfrestur rennur út þann 13. apríl og mu nýr skólastjóri hefja störf eigi síðar en 1. ágúst 2026.
Hæfniskröfur eru eftirfarandi:
- Leyfisbréf til kennslu og kennslureynsla á grunnskólastigi
- Framhaldsmenntun í stjórnun eða uppeldis- og kennslufræðum er æskileg
- Farsæl reynsla af rekstri, stjórnun og skólaþróun er æskileg
- Framúrskarandi hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
- Leiðtogafærni, metnaður og styrkur til ákvarðana
- Þekking á þeim lögum, reglugerðum og öðrum opinberum fyrirmælum sem varða skólastarf
- Þekking á möguleikum og takmörkunum stafrænnar tækni í skólastarfi
- Skipulagshæfni og góð yfirsýn
- Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti
Sótt er um starfið í gegnum vef Hagvangs: Umsókn skólastjóri Grunnskóla Þorlákshafnar

