Eitt af stefnumálum D-listans í Ölfusi er að efla frístundastarf barna.
Það er mikilvægt að við horfum á frístundastarf barna og ungmenna sem sjálfstæðan og sérhæfðan málaflokk með skýra stefnu, markvissu skipulag og markvissa faglega stjórn. Þess vegna viljum við aðgreina frístundastarf frá öðru skólastarfi og fela sérstakri frístundamiðstöð rekstur þess starfs sem snýr að frítíma barna og ungmenna í sveitarfélaginu.
Undir frístundamiðstöðina myndi falla frístund fyrir yngri börn, lengd viðvera fyrir börn með fatlanir, félagsmiðstöðvastarf og sumarfrístund. Með þessu skapast tækifæri til að byggja upp heildstæða sýn á þjónustuna þar sem þarfir barna og fjölskyldna eru hafðar að leiðarljósi allan daginn, allt árið um kring.
Við viljum einnig ráða sérstakan verkefnastjóra yfir starfseminni sem hefði það hlutverk að samræma þjónustuna, styðja starfsfólk og tryggja faglega þróun. Með skýrari stjórnsýslu og aukinni sérhæfingu teljum við að hægt verði að efla starfsemina til muna, bæta samfellu í þjónustu og skapa betri upplifun og þjónustu fyrir börn, foreldra og starfsfólk.
Við trúum því að með þessum breytingum sé hægt að skapa skýrari umgjörð utan um frístunda- og stuðningsstarf barna og ungmenna, styrkja þjónustuna til framtíðar og mæta fjölbreyttum þörfum fjölskyldna í sveitarfélaginu enn betur.

