Rúnar Gunnarsson með nýtt lag – Stefnir á plötu

Rúnar GunnarssonSjómaðurinn og tónlistarmaðurinn Rúnar Gunnarsson, gaf í dag út nýtt lag. Tíminn er á þrotum  heitir lagið.

Rúnar hefur um árabil unnið sem sjómaður á Fróða II ÁR-38, en í frítíma sínum hefur hann dundað sér við að semja lög á gítara sína.

„Ég stefni klárlega á plötu“ ,segir Rúnar aðspurður um hvort von sé á plötu frá honum.

Rúnar gerir þó ráð fyrir að platan komi ekki út fyrr en á næsta ári. Hann vilji ekki fara sér óðslega, heldur gefa sér góðan tíma í gerð plötunnar.

Það var Vignir Snær Vigfússon, gítarleikari í hljómsveitinni Írafár, sem sá um upptökustjórn og útsetningu lagsins sem og að spila á gítar.

Aðrir meðspilarar eru Benedikt Brynleifsson á trommur, Pétur Hjaltested á hljómborð, Róbert Dan Bergmundsson á bassa og þá sá Árni Þór Guðjónsson um gítarsóló.

Það verður gaman að fylgjast með framvindu mála í tónlistinni hjá Rúnari Gunnarssyni á komandi mánuðum.