Bókasafnið lokað á mánudaginn

ráðhúsið2Á morgun, mánudaginn 25. nóvember, verður vinnudagur hjá starfsfólki bókasafnsins, þar sem farið verður í stefnumótunarvinnu og undirbúnar ýmsar breytingar sem miða að bættri þjónustu við viðskiptavini safnsins. Af þeirri ástæðu verður bókasafnið lokað þennan dag.

Hægt verður að skila bókum í kassa fyrir framan dyr bókasafnsins og þeir sem vilja framlengja lán, geta hringt í síma 480 3830.

Við biðjum um skilning ykkar og þolinmæði.
Starfsfólk bókasafnsins