Dekkjum stolið af lóð Járnkarlsins að andvirði 1,5 milljón króna

jarnkarlinn01Brotist var inn í gám á lóð Járnkarlsins við Unubakka 25 í Þorlákshöfn. Innbrotið átti sér stað einhvern tíman á milli föstudagskvölds og klukkan 17 í gær, sunnudag. Þeir sem voru þar að verki stálu 20 jeppadekkjum og 4 fólksbíladekkjum. Öll dekkin utan fjögur voru á felgum. Þetta kemur fram á vef lögreglunnar.

Áætluð verðmæti þýfisins er hálf önnur milljón króna en meðal dekkjanna sem var stolið voru lítið notuð Maxxis Mudder 38“, ný Good/Year 31“ ný Hercules 35“, Bf Goodrich 33“ og 32“ negld dekk, tegund óþekkt.

Þeir sem geta veitt upplýsingar um þetta innbrot og hvar dekkin er hugsanlega að finna eru beðnir að hafa samband við lögreglu í síma 480 1010.