Rúmlega 20 manns sagt upp hjá Frostfiski

frostfiskur01
Húsnæði Frostfisks. Mynd / Ja.is

Um 25 manns hefur verið sagt upp störfum síðustu tvo mánuði hjá fiskvinnslufyrirtækinu Frostfiski í Þorlákshöfn.

Samkvæmt heimildum voru um 20 manns sagt upp núna í nóvember og í síðasta mánuði voru um það bil 5 manns sagt upp störfum.

Ástæður uppsagnanna eru sagðar þær að ekki sé nægt hráefni að finna á fiskmörkuðum til að halda fyrirtækinu gangandi með þann mannskap sem fyrir var. Því hafi þurft að grípa til þessara aðgerða með þeim afleiðingum að rúmlega 20 manns misstu vinnuna.