Mið-Ísland mætir í höfnina

Mið-ÍslandStrákarnir í Mið-Íslandi mæta til Þorlákshafnar miðvikudagskvöldið 6. maí næstkomandi með uppistandssýninguna Lengi lifi Mið-Ísland. Sýningin fékk frábærar viðtökur og hefur verið sýnd 60 sinnum í Þjóðleikhúskjallaranum frá áramótum. Gestir eru orðnir yfir 10 þúsund talsins en Mið-Ísland skipa þeir Ari Eldjárn, Björn Bragi, Dóri DNA og Jóhann Alfreð.

Miðaverð er 3.500 krónur og verður forsala miða á bókasafninu og um vefinn www.midi.is.