Gefins molta

molta01Sveitarfélagið Ölfus hefur ákveðið að bjóða íbúum aftur upp á moltu frá Gámaþjónustunni eins og gert var síðasta sumar.  Molta er tilvalin til þess að setja td. ofan á trjábeð.  Þegar moltan er búin til hitnar hún mjög mikið og má því segja að hún sé gerilsneydd og án allra illgresisfræja.  Moltan samanstendur af lífrænum úrgangi s.s. elduðum matarleifum, ávöxtum, grænmeti og kurluðum trjágreinum.  Ferlið tekur um 4 mánuði og nær hitinn á ferlinu upp í 70°c.

Moltan er í bláum gám við áhaldahúsið á Selvogsbrautinni. Þeir íbúar sem hyggjast nýta sér þetta kosta boð eru beðnir um að ganga vel um þegar það sækir sér moltu og hreinsa upp eftir sig ef það sullast eitthvað niður.