Nýr skólastjóri Grunnskólans í Þorlákshöfn

skolastjori01Guðrún Jóhannsdóttir nýr  skólastjóri  Grunnskólans í Þorlákshöfn tók við lyklavöldum að skólanum úr hendi Guðna Péturssonar bæjarritara sveitarfélagsins  í dag en hún hefur verið  ráðin frá  og með 1. ágúst s.l.

Guðrún er ættuð frá  Eyrarbakka og hefur starfað sem deildarstjóri yngri deildar og forstöðumaður skólavistunar í Vallaskóla á Selfossi síðustu ár.

Bæjarstjórn Ölfuss starfsmenn  sveitarfélagsins svo og íbúar Þorlákshafnar bjóða hana hjartanlega velkomna til starfa og hlakka til samstarfs við hana við frekari uppbyggingu og þróun skólastarfs við Grunnskólann í Þorlákshöfn.