Kynþáttafordómar í leik Ægis

BrettonÍ dag unnu Ægismenn leik sinn á móti Hetti á Egilsstöðum 0-2 eins og við fjölluðum um fyrr í dag. Þrátt fyrir sigur okkar manna þá skyggði leiðinda atvik á sigur Ægis.

Atvikið sem skyggði á sigurinn voru kynþáttafordómar sem Georgi Stefanov, leikmaður Hattar var í tvígang sakaður um í garð Brenton Muhammad markvarðar Ægis. Auk þess virtist hann hrækja á varnarmann okkar. Greint var frá málinu á vefnum Austurfrétt.

„Tvívegis urðu Ægismenn ævareiðir eftir viðskipti Stefanov og Muhammad. Í fyrra skiptið var Stefanov að setja pressu á markvörðinn og þegar markvörðurinn tók boltann upp og kom honum í leik á ný, virtist Stefanov segja eitthvað við hann sem reitti hann og varamenn Ægis, sem hituðu upp í nokkurra metra fjarlægð, til mikillar reiði.

Svipað atvik átti sér stað skömmu síðar. Aftur virtist Stefanov segja eitthvað við Muhammad sem reitti hann til reiði og heyrðist markvörður Ægis kalla á línuvörðinn og dómarann að þarna hefði verið um rasísk ummæli að ræða.

Umrædd ummæli heyrðust ekki upp í stúku, en leikmaður Hattar sem var við hliðarlínuna svaraði spurningum áhorfenda og sagði að Stefanov hefði í tvígang kallað markvörð Ægis apa. Þá sögu segja einnig leikmenn Ægis sem Austurfrétt ræddi við.

Stemningin þegar leikurinn var flautaður af var skrítin. Áhorfendur voru margir hverjir furðu lostnir og með óbragð í munni yfir því sem þeir höfðu orðið vitni að“ segir á vefnum Austurfrétt.

ÆgirÞví miður þá virtist dómarateymið ekki verða vart við þetta og fékk Stefanov því ekki spjald í leiknum. Leikmenn Hattar heyrðu þó að Stefanov kallaði Muhammad apa í tvígang.

„Markvörður Ægis var stórmannlegur og fór beint til Stefanov og faðmaði hann og tók í höndina á honum. Að því loknu komu Hattarmenn einn af öðrum og tóku utan um markvörð andstæðingana og báðu Ægismenn afsökunar á þessari framkomu. Ótrúleg uppákoma á knattspyrnuvelli á Austurlandi árið 2015,“ segir á vefnum Austurfrétt.

Gunnlaugur Guðjónsson þjálfari Hattar heyrði ekki atvikið en sagði að menn væru saklausir uns sekt þeirra væri sönnuð en tók fram að tekið yrði á málinu innanbúðar hjá Hetti.

„Við munum ekki sætta okkur við svona vitleysu. Við stöndum ekki fyrir eitthvað svona. Einhver svona rasismi er alls ekki líðandi og þó að stærri klúbbar úti í heimi standi með sínum mönnum í gegnum súrt og sætt munum við ekki líða eitthvað svona,“ sagði Gunnlaugur í samtali við Austurfrétt.