„Af hverju þarf ég að lesa?“ í Þorlákshöfn

bokasafnsdagur01„Af hverju þarf ég að lesa?“ er málþing Bókabæjanna austanfjalls sem haldið verður fimmtudaginn 12. nóvember kl. 17:30 í Ráðhúsi Ölfuss.

Bókabæirnir austanfjalls vilja auka hróður barnabókarinnar og vekja athygli á mikilvægi barnabóka í eflingu læsis. Því munu þeir standa fyrir málþinginu „Af hverju þarf ég að lesa?“ sem er sjálfstætt framhald Barnabókahátíðar Bókabæjanna austanfjalls sem haldin var í í Bókabæjunum austanfjalls 18. og 19. september 2015.

Inntak málþings er barnabókmenntir og læsi – hlutverk barnabókarinnar í eflingu læsis. Spurningunum „af hverju erum við að þessu?“ og „af hverju þurfa börn að lesa?“ verður svarað frá hinum ýmsu sjónarhornum.

Málþingið er öllum opið og kostar ekkert.

Dagskrá

  • 17:30 – Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra setur málþingið.
  • 17:40 – Gylfi Jón Gylfason.
  • 18:00 – Margrét Tryggvadóttir: Skipta barnabækur máli?
  • 18:20 – Gerður Kristný: „Bækur breyta heiminum“.
  • 18:40 – Hlé
  • 19:10 – Lára Aðalsteinsdóttir verkefnisstjóri Reykjavíkur Bókmenntaborgar UNESCO
    „Komdu með á hugarflug“.
  • 19:30 – Andri Snær Magnason.
  • 19: 50 – Spurningar úr sal.
  • 20:00 – Dagskrárlok