Saga Þorlákshafnar væntanleg úr prentun

thorlakshofn_1968Undanfarin ár hefur Björn Pálsson, fyrrum héraðsskjalavörður unnið að skráningu Sögu Þorlákshafnar frá árinu 1930 til 1990. Bókin er nú komin í prentun og er útgáfu vænst í byrjun desember.

Bókin spannar spennandi tímabil í sögu Þorlákshafnar þar sem ungt og athafnasamt fólk ákveður að koma til Þorlákshafnar, byggja hús og flytja hingað fjölskyldur sínar. Smám saman verður til þorp sem býr að athafnagleði, virku félagslífi, framtakssemi og samtakamætti þeirra sem hingað fluttu.

Á bakhlið bókarinnar skrifar handritshöfundur „hér er brugðið upp myndum af framkvæmdum í Þorlákshöfn, fyrirtækjum, félögum og lífsháttum íbúa. Hundruð ljósmynda og teikninga hjálpa lesanda að rata þær söguslóðir. Skráðir íbúar árið 1950 voru fjórir, 523 árið 1970 og 1218 við sögulok árið 1990. Nefnd eru öll íbúarhús byggð á 20 árum frá 1951, íbúa getið og hvaðan þeir komu. Fjölskyldumyndir eru af nær öllum þeim sem þar höfðu tekið sér búsetu fyrir árið 1971 og teljast því frumbyggjar Þorlákshafnar.“

Hægt er að forpanta bókina hjá menningarfulltrúa um netfangið barbara@olfus.is, en bókin verður til sölu á bókasafninu í Þorlákshöfn auk þess sem hún mun fást í völdum bóka- búðum.

Með kveðju, Barbara Guðnadóttir
menningar- og markaðsfulltrúi Ölfuss