Silungakvartettinn á tónleikum í Þorlákshöfn

kvintett01Fimmtudaginn 19. nóvember heldur kvintett skipaður Gretu Guðnadóttur, fiðluleikara, Guðrúnu Þórarinsdóttur, víóluleikara, Júlíu Mogensen, selló, Þóri Jóhannssyni, kontrabassa og Ingunni Hildi Hauksdóttur á píanó, tónleika á vegum Tóna við hafið í Þorlákskirkju.

Á tónleikunum flytur kvintettinn Silungakvintettinn eftir Franz Schubert, en kvintettinn „…er eitt af kunnustu kammertónverkum Schuberts og er talinn merkisteinn í tónskáldskaparsögu hans“, líkt og Árni Kristjánsson skrifar í bókinni Hvað er tónlist? Einnig er á efnisskránni kvintett eftir franska samtímakonu Schuberts, Luis Farrence, einstaklega fallega tónsmíð sem á svo sannarlega skilið meiri athygli.

Tónleikarnir verða í Þorlákskirkju í Þorlákshöfn, hefjast klukkan 20:00 og er aðganseyrir 2.000 krónur.