Veðrið, lokanir og tilkynningar

VindurÞað hefur líklegast ekki farið framhjá neinum að það er spáð mjög slæmu veðri. Björgunarsveitir minna fólk á að festa lausamuni, losa frá niðurföllum og hafa eldspýtur, kerti, vasaljós og rafhlöðuknúið útvarp við höndina, til að geta fylgst með fréttum af veðrinu, þótt það verði rafmagnslaust.

Tilkynningar:

  • Búið er að loka Þrengslunum og Hellisheiðinni
  • Íþróttamiðstöðin og sundlaugin lokar kl. 18:00
  • HardCORE fellur niður í dag
  • GottForm fellur niður í dag
  • Félagsmiðstöðin Svítan verður lokuð í dag
  • Skólastjórnendur hvetja foreldra og forráðamenn að sækja börn sem allra fyrst í skólann í dag
  • Verslunin Kjarval lokar kl. 14:00 í dag
  • Landsbankinn lokar klukkan 13:00 í dag
  • Búið e r að fresta bingói hjá Félagi eldri borgara sem átti að vera í kvöld og verður í staðin á fimmtudaginn
  • Búið er að aflýsa aðalfundi Bókabæjanna austanfjalls sem vera átti á Selfossi í dag.