„Þið eigið bestu sundlaugina“

sundlaug_olfus-3Rétt fyrir jólin settu starfsmenn bókasafnsins upp bókagjafaborð í íþróttahúsinu. Reyndar voru innpakkaðar bækurnar ekki alveg ókeypis, heldur urðu áhugasamir að skrifa á miða eitthvað jákvætt um Þorlákshöfn eða Ölfusið áður en þeim bauðst að velja sér bókapakka.

Margir tóku þátt í þessu skemmtilega verkefni og á heimasíðu sveitarfélagsins er búið að birta það sem skrifað var á miðana og hér að neðan má sjá hvað fólk hafði jákvætt um Ölfus og Þorlákshöfn að segja.

  • Í Þorlákshöfn er gott að vera með börn. Góð þjónusta er fyrir þau á vegum sveitarfélagsins, m.a. skólar. Einnig er hér frábær aðstaða fyrir íþróttir.
  • Hér búa amma og afi
  • Allt í sundinu ykkar er of jákvætt til að lýsa því.
  • Að búa í Ölfusi er dásamlegt og þar býr gott fólk
  • Ölfusið er þar sem hjartað slær og hlutirnir gerast, flottasta lúðrasveit Íslands.
  • Þið eigið bestu sundlaugina.
  • Hún er flott.
  • Gott að ala upp börn – öruggt, friðsælt, gott íþróttastarf og tónlistarskóli.
  • Þetta er einstaklega falleg og skemmtileg sundlaug. Svo góð er hún að við komum alla leið úr Reykjavík til að synda í henni. Gleðileg jól (mynd af broskalli)
  • Frábær íþróttaaðstaða.
  • Ölfus! Segir allt sem segja þarf!
  • Í Þorlákshöfn er alltaf gott að koma. Þar er manni allsstaðar vel tekið og alltaf einhver til í að spjalla við mann í pottinum. Enginn þarf að vera einmana í Þorlákshöfn.
  • Þorlákshöfn (mynd af broskalli)
  • Í Þorlákshöfn er fullt af fallegu fólki, fallegum húsum sem gott er að búa í. Má ég eiga krukkuna þegar leikurinn er búinn?
  • Fegurð í náttúru og mannlífi.
  • Ég elska Þorlákshöfn. Flóki 6 ára