Styrkir úr Afreks- og styrktarsjóði Sveitarfélagsins Ölfuss

dolus01Íþrótta- og æskulýðsnefnd Sveitarfélagsins Ölfuss auglýsir styrki úr Afreks – og styrktarsjóði Sveitarfélagsins Ölfuss.

Markmið sjóðsins er m.a. að veita afreksíþróttafólki í hóp/einstaklingsíþróttum í Sveitarfélaginu Ölfusi fjárhagslegan styrk til þátttöku í íþróttakeppnum erlendis. Einnig að veita afreksmönnum á sviði íþrótta viðurkenningu og stuðning til þjálfunar og þátttöku í mikilvægum keppnum.

Úthlutun styrkja fer fram í apríl nk.

Hægt er að nálgast umsóknareyðublað á heimasíðu eða á skrifstofu Sveitarfélagsins Ölfuss.

Umsóknir um styrki úr sjóðnum þurfa að berast til skrifstofu Sveitarfélagsins Ölfuss, Ráðhúsinu Hafnarbergi 1 í Þorlákshöfn, fyrir 1. apríl næstkomandi, merkt: AFREKS – OG STYRKTARSJÓÐUR SVEITARFÉLAGSINS ÖLFUSS – UMSÓKN.

Nánari upplýsingar veitir Ragnar Sigurðsson Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi, í síma 480 – 3891 eða á netfanginu ragnar@olfus.is

Sveitarfélagið Ölfus
Íþrótta – og æskulýðsnefnd