Kristjana Stefáns og Svavar Knútur á Hendur í höfn

kristjana_svavar01Vinirnir og söngvaskáldin Svavar Knútur og Kristjana Stefáns koma aftur saman á sinni árlegu sumar tónleikaferð og munu halda tónleika á Hendur í höfn 1. júlí næstkomandi kl. 20.

Kristjana og Svavar Knútur hafa undanfarin ár vakið verðskuldaða athygli fyrir stórskemmtileg dúettakvöld. Þar ríkir bæði gleði og angurværð ásamt örlitlum fíflagangi og bera þau vinirnir á borð fjölbreytta dagskrá dúetta, sem rúmar allt frá Abba til Dolly Parton með viðkomu hjá The Righteous Brothers og Páli Ísólfssyni, auk frumsaminna laga og hinna ýmsu gleði- og tregabomba, ljóðalestri og gamansagna.

Kristjana og Svavar hafa síðan 2008 haft unun af því að syngja saman dúetta og komið fram víða um land við gríðargóðar undirtektir. Þau gáfu út dúettaplötuna Glæður árið 2011 hjá Dimmu ehf.

Miðaverð er kr. 3.500. Best er að tryggja sér miða í tíma, enda takmarkaður miðafjöldi í boði á hverjum stað.  Börn eru hjartanlega velkomin með og ókeypis fyrir þau.