Ölfus gerir vinabæjarsamning við hamingjusömustu borg Kína

undirskrift-vinasamnings-kinaSveitarfélagið Ölfus hefur gert vinabæjarsamning við hamingjusömustu borg Kína, átta ár í röð. Borgin sem um ræðir heitir Changsha og er höfuðborg Húnan sýslu í Mið-Kína en þar búa 7,3 milljónir íbúa.

Skrifað var undir samninginn við hátíðlega athöfn á Fosshótel Reykjavík mánudaginn 17. október sl. Eftir athöfnina komu fulltrúar Changsha í heimsókn í Þorlákshöfn, skoðuðu bæinn og snæddu kvöldverð á Hafinu Bláa með fulltrúum sveitarfélagsins.

Changsha er þekkt fyrir ríka arfleið, menningu og mikla áherslu á umhverfisvæna hugsun en 53% borgarinnar er þakin grænum svæðum og skógum og stærsti rafbílaframleiðandi heims, BYD er staðsettur í borginni.

Changsha á því góða samleið með Sveitarfélaginu Ölfusi þegar kemur að umhverfisvænni hugsun en Ölfus er ríkt af náttúruauðlindum og má þar nefna nóg af köldu vatni, jarðvarma á Hengilssvæðinu sem nýttur er til húshitunar og rafmagnsframleiðslu.

Í frétt á heimasíðu Sveitarfélagsins Ölfuss kemur fram að með undirskrift á vinabæjarsamningnum sé vonast til að samskipti verði tíð og að báðir aðilar hagnist á samskiptunum á sviðum menningar, tækni, menntunar, ferðamála o.s.frv.