Þorpið þemadagar í Grunnskólanum í Þorlákshöfn

Dagana 4. -7. apríl verður skólanum okkar breytt í fríríkið Þorpið og ganga nemendur í öll störf þorpsbúa.

Í þorpinu eru starfrækt kaffihús, bakarí, sultugerð og danssmiðja, kertasmiðja, trésmiðja, listasmiðja, nytjamarkaður, saumastofa, hvíldarstöð, skartgripaframleiðsla, banki, dagblað, sjávarútvegsstöð og útvarpsstöð.

Nemendur sendu inn atvinnuumsóknir á dögunum og var úthlutað störfum eftir óskum. Allir fá greitt fyrir sín störf í gjaldmiðli fríríkisins, svonefndum þollara, sem síðan er hægt að nota til þess að kaupa ýmsan varning og góðgæti í Þorpinu. Þorpið verður opið fyrir gesti og gangandi, föstudaginn 7. apríl á milli kl. 11-13. Þá gefst fólki kostur á að skipta íslenskum krónum í þollara og njóta alls þess sem Þorpið hefur upp á að bjóða.

Við hvetjum bæjarbúa til að fylgjast með verkefninu og hlusta á útvarpsstöð Þorpsins en tíðnin er FM 94,5. Einnig vonumst við eftir að sjá sem flesta á opnun Þorpsins föstudaginn 7. apríl.