Eldur í bát í Þorlákshöfn – Tveir klefar ónýtir

Myndir: Brunavarnir Árnessýslu

Klukkan tvö í nótt barst slökkviliðsmönnum hjá Brunavörnum Árnessýslu í Þorlákshöfn tilkynning um að reykur sæist frá bát við Svartaskersbryggju í Þorlákshöfn.

Um var að ræða bátinn Steina Sigvalda GK en í fyrstu var ekki vitað hvort einhver væri um borð en fljótlega náði Landhelgisgæslan sambandi við yfirstýrimann sem staðfesti að báturinn væri mannlaus.

„Reykkafarar fóru um borð í bátinn og fundu eldinn og hófust handa við að slökkva hann. Mikill hiti var um borð og þurfti töluvert magn af vatni til að slökkva eldinn og kæla rýmið. Þegar eldurinn hafði verið slökktur var vatninu dælt upp úr bátnum aftur til að koma í veg fyrir að hann sykki,“ segir í tilkynningu Brunavarna Árnessýslu um málið.

Þó nokkuð tjón varð á bátnum og samkvæmt Hirti Bergmanni Jónssyni Hafnarstjóra í Þorlákshöfn eru íbúðirnar framan í bátnum ónýtar, það eru tveir þriggja manna klefar.

Slökkvistarf gekk vel en eldsupptök eru óljós. Nítján slökkviliðsmenn af þremur stöðvum Brunavarna Árnessýslu tóku þátt í aðgerðinni sem stóð fram á morgun.